ca. 4:00 @ Skólavörðustígur

April 24th, 2008

Moi: Ermm… jájá, allt í lagi. Ég skal alveg fylgja þér heim [á Eiríksgötuna] ef þú vilt.

Árans leiðindaskjóða: [frekar æst] Já ég meina, heldur þú að það sé öruggt fyrir konu að labba ein hérna? Ég meina, heldurðu það???

Moi: [Hugsar sig um]… ömmm… aaa…. ja, það fer auðvitað eftir því hversu margt fólk er á ferð til að byrja með. Ef það er allt sneisafullt af fó….

Árans leiðindaskjóða: Djös karlreeeemba mar!

Moi: Ha? Bíddu hva….

Árans leiðindaskjóða: Já í AAAAlvörunni [gengur burt]

Moi: *andvarp* [gengur heim á leið]

Tímaeyðsla

April 9th, 2008

Ef ykkur leiðist þá er hægt að dunda sér við þetta.

Umræður

April 2nd, 2008

http://img215.imageshack.us/img215/1981/jessicaalbaboardde8.jpg

Protected: ….

April 1st, 2008

This post is password protected. To view it please enter your password below:

Hannes

March 30th, 2008

Hohoho, bara söfnun í gangi fyrir frjálshyggjupostulann. Hahahaha, er það í anda frjálshyggjunnar?

, bjánarnir ykkar! Það er einmitt í anda frjálshyggjunnar að fólk leggi til pening af fúsum og frjálsum vilja fyrir málstað sem það sjálft kýs að styrkja.

Eins vil ég benda á að Vísir hefur náðáður óþekktum hæðum í fyrirsagnasmíð.

Gletscher

March 29th, 2008

Jökullinn var magnaður. Fjórir tímar upp, tveir niður. Uppi á toppi var emmeffíng kalt! Með vindkælingu jafngilti þetta þrjátíu stiga frosti. Þrátt fyrir að vera í flíshönskum, flíslúffum og goretex-skel utanyfir það hélt ég í upphafi niðurferðar að puttarnir myndu detta af mér. Ég tók enga mynd á toppnum, enda hávaðarok, skafrenningur…. og ég hefði þurft að klæða mig úr öllu lúffudraslinu og þá hefðu puttarnir dottið af mér.

Vitlaust fjall

March 27th, 2008

Hekla er ekki alveg strax. Fyrst Snæfellsjökull.

Labb

March 26th, 2008

Samkvæmt spánni verður bloody gott veður á laugardaginn. Það verður þá vonandi gott útsýni af Heklu.


Viðb.
Svei! Spáin hefur versnað. Jæja, vonum það besta.

Q

March 18th, 2008

Burt með þessi ský. Það má alveg koma meira svona “logn, heiðskírt og kalt” veður. Og af hverju er Júpiter svona lágt á lofti? Og það á mjög óhentugum tíma sólarhringsins. Curses!

Annars fær Árninn afmæliskveðjur frá öllu starfsliðinu hér á Sjonnapunktineti, sem og fyrsti Gengiserfinginn. Huzzah!

Outlook er fyndið.

March 17th, 2008

“Deleting items from the Deleted Items folder.”